Search
Close this search box.
Leita
Netverslun

Skilmálar

ALMENNIR SKILMÁLAR

Sítróna tekur enga ábyrgð á innsláttarvillum eða röngum upplýsingum sem birtar eru á vefnum. Þá eru meðtalin verð og vörulýsingar. Sítróna áskilur sér rétt til að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vöru eða vörutegundir í heild fyrirvaralaust.

Öll verð í netverslun eru með virðisaukaskatti (VSK) sem er annars vegar 11% fyrir fæðubótarvörur og hins vegar 24% fyrir aðrar vörur.

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum að frátöldum upplýsingum til flutningsaðila, upplýsingar á borð við nafn og heimilisfang sem þarf til að koma vörum til kaupanda.

NOTKUN Á PERSÓNUUPPLÝSINGUM

Sendingar úr kerfi netverslunar kunna að nota persónuupplýsingar, s.s. búsetu, aldur eða viðskiptasögu, til að útbúa viðeigandi skilaboð til meðlima síðunnar. Þessar upplýsingar eru aldrei afhentar þriðja aðila. Meðlimir netverslunarinnar geta ætíð afskráð sig og þannig neitað fyrirtækinu notkun á slíkum upplýsingum. Sjá nánar um persónuverndarstefnu.

AFHENDING OG AFGREIÐSLA VÖRU

Afhending vöru fer einungis fram með póstsendingu og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar. Sítróna ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Ef vara er uppseld þá munum við í öllum tilfellum hafa samband við kaupanda. 

Sítróna áskilur sér rétt til að afgreiða ekki pöntun ef vara er uppseld, og eða breyting verður á verði og vöruframboði. Í slíkum tilfellum verður haft samband við kaupanda sem hefur þá val um að fá endurgreitt eða valið sér aðra vöru.

Afgreiðslutími á einstökum vörum getur verið allt að 8 virkir dagar frá því að pöntun er gerð. Haft verður samband við kaupanda vöru ef fyrirséð er vegna ytri aðstæðna að afhending tefjist.

Frí póstsending er á pöntunum sem eru að upphæð fimm þúsund krónur og hærra. Póstsendingar á pöntunum undir framangreindu viðmiði greiðast af viðtakanda við afhendingu á vöru/m. Gjald fyrir póstsendingar greiðist af móttakanda samkvæmt verðskrá Póstsins.

AFSLÆTTIR OG TILBOÐ

Afslættir og afsláttarkóðar (coupon) gilda ekki fyrir vörur sem fyrir eru á tilboði eða með öðrum tilboðum. Fyrir pantanir sem innihalda eingöngu vörur á tilboði gilda ekki fríar póstsendingar.

SKIL EÐA SKIPTI Á VÖRUM

Skilaréttur á vöru er 14 dagar að því tilskildu að varan sé ónotuð, henni skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki vera búið að rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Ef verðbreytingar verða á vöru á þessum 14 dögum er hún tekin til baka á gildandi söluverði þann dag sem varan var keypt.

ATH. Vörur keyptar á útsölu fæst ekki skilað.

HÖFUNDARRÉTTUR OG VÖRUMERKI

Allt efni á netsíðunni sitrona.is, eins og texti, grafík, lógó, hnappar, táknmyndir, myndir og hugbúnaður er annað hvort í eigu Sítróna eða annara birgja. Því er öll notkun á efni af vefsíðunni háð leyfi frá eiganda þess.

LÖGSAGA OG VARNARÞING

Komi til málshöfðunar milli kaupanda og seljanda um túlkun á skilmála þessa, gildi þeirra og efndir skal reka það fyrir Héraðsdómur Reykjaness.

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Nafn Verslunarfélagið Nava ehf.
Heimilisfang  
Sími  
Netfang hallo@sitrona.is
Kennitala 520321-1790
VSK númer 140609

Síðast uppfært, júní 2021

Sjá einnig upplýsingar um persónuverndarstefnu
Sjá einnig um vefkökur